Tinnuskarð 1 & 1A
Tinnuskarð 1 & 1a , u.þ.b. 400 m² glæsilegt og vel hannað tvíbýli, annar hlutinn á pöllum og hinn á 2 hæðum með stórum þaksvölum.
Mjög góð staðsetning í Skarðshlíðinni, Hafnarfirði. Húsið er hannað af Sigurði Hafsteinssyni hjá Vektor.
Húsið er staðsteypt aukin lofthæð er í húsinu og er það einstaklega vel skipulagt. Húsið skilast tilbúið að utan og fokhelt að innan ásamt grófjafnaðri lóð samkvæmt skilalýsingu.
Efra húsið er á 2 pöllum og er gengið inn á neðri pall og eru nokkrar tröppur upp á efri pall. Innangengt er í bílskúr. Góð lofthæð er í stofum og eldhúsi. Í tveggja hæða húsinu er labbað inn á neðri hæð við hlið bílskúrs sem er innangengur. Baðherbergi og barnaherbergi eru á neðri hæðinni og gengið er upp stigann þar sem bjart eldhús og stofa með stórum gólfsíðum gluggum taka á móti þér. Hjónasvítan er einnig á efri hæðinni og baðherbergi. Rennihurð er úr stofu út á 94m² þaksvalir.
Útveggir eru einangraðir að utan og verða klæddir með plötuklæðningu eða báruáli. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Svalahandrið eru úr punkftfestu öryggisgleri. Sjá nánar í skilalýsingu.
